Síðast uppfært: 13. október 2026 · Gildistaka: 13. október 2026
Skilmálar þessir gilda um notkun á vefnum verka.is, Verka-appinu og þjónustunni Verka (saman „þjónustan“). Verka er ekki félag heldur þjónusta sem rekin er sameiginlega af tveimur einstaklingum: Brynjar Már Sigurjónsson, kt. 260502-2470, og Sigurður P. Ndaw Sigursteinsson, kt. 010202-2640, með aðsetur að Skólagerði 10, 200 Kópavogur (saman „rekstraraðilar Verka“, „Verka“ eða „við“).
Með því að stofna aðgang eða nota þjónustuna gerir þú samning við rekstraraðila Verka á grundvelli skilmála þessara og samþykkir þá. Ef þú samþykkir þá ekki skaltu ekki nota þjónustuna. Persónuverndarstefna Verka er hluti af skilmálunum.
Verka er markaðstorg sem tengir saman verkkaupa og iðnaðarmenn: verkkaupar auglýsa verkefni, iðnaðarmenn senda tilboð og verkkaupar velja á milli þeirra. Á vettvangnum geta notendur jafnframt átt í samskiptum, gengið frá vali á tilboði og skrifað umsagnir að verki loknu.
Verka veitir sjálf enga iðnaðarþjónustu, vinnur engin verk, hefur engin afskipti af framkvæmd verka og er hvorki vinnuveitandi, umboðsmaður, verktaki né undirverktaki nokkurs notanda.
Verka sendir tilkynningar tengdar notkun þjónustunnar á vettvanginum og, hafir þú skráð netfang, með tölvupósti, t.d. um ný tilboð, samþykki eða höfnun tilboðs, ný skilaboð, beiðnir um tilboð og boð um aðild að fyrirtæki. Iðnaðarmenn fá auk þess einn póst á dag með nýjum verkefnum sem auglýst hafa verið í iðngrein þeirra og á svæði þeirra, aðeins þegar eitthvað nýtt er. Á síðunni Stillingar velur þú hvaða tilkynningar berast með tölvupósti, og í hverjum slíkum pósti er hlekkur til að afþakka þá; hlekkurinn í daglega póstinum um ný verkefni afþakkar aðeins þann póst. Verka sendir ekki markaðsefni nema með samþykki þínu. Tilkynningar um breytingar á skilmálum og aðrar mikilvægar upplýsingar um aðganginn geta borist með rafrænum hætti.
Verka getur breytt, bætt við eða hætt einstökum eiginleikum þjónustunnar. Ákveði rekstraraðilar að hætta rekstri hennar verður notendum tilkynnt um það með minnst 30 daga fyrirvara og geta þeir á þeim tíma sótt afrit af gögnum sínum á síðunni Stillingar.
Fyrirtæki og stofnanir geta komið fram á vettvangnum undir eigin nafni og kennitölu, sent tilboð í nafni sínu, auglýst verkefni í nafni sínu og átt opinbera síðu. Fyrirtækið fær samt aldrei sjálfstæðan aðgang: enginn skráir sig inn „sem fyrirtæki“, heldur koma einstaklingar fram fyrir hönd þess, hver með sínum eigin rafrænu skilríkjum og á eigin aðgangi.
Skilmálar þessir binda bæði fyrirtækið og þann einstakling sem kemur fram fyrir hönd þess. Einstaklingurinn er áfram bundinn af þeim vegna eigin aðgangs, og með því að stofna fyrirtæki, senda tilboð eða auglýsa verkefni í nafni þess skuldbindur hann fyrirtækið jafnframt til að hlíta þeim.
Verka er eingöngu milligönguaðili sem gerir notendum kleift að finna hver annan. Samningur um verk kemst á milli verkkaupa og iðnaðarmanns, og Verka er ekki aðili að þeim samningi. Aðilarnir semja sín á milli um endanlegt verð, verklýsingu, tímasetningar, ábyrgðir, greiðslur og önnur kjör og bera sjálfir alla ábyrgð á efndum, göllum, töfum, tjóni og uppgjöri sín á milli.
Verka kannar ekki bakgrunn, hæfni, tryggingar, fjárhag eða áreiðanleika notenda og hefur ekkert eftirlit með verkum eða samskiptum notenda utan vettvangsins. Verka ábyrgist hvorki gæði, framvindu né efndir verka, né heldur greiðslugetu, heiðarleika eða háttsemi notenda. Öll viðskipti sem stofnast í gegnum þjónustuna eru á eigin áhættu notenda.
Merkið „staðfest réttindi“ á prófíl iðnaðarmanns byggir á samsvörun við afrit Verka af opinberum skrám yfir útgefin meistarabréf, sveinsbréf og viðurkennd starfsréttindi, sem uppfært er reglulega. Finnist réttindi ekki í skránni getur notandi óskað handvirkrar athugunar á síðunni Stillingar, en Verka getur hvorki breytt opinberu skránni né staðfest réttindi sem þar koma ekki fram; rangar upplýsingar í skránni þarf viðkomandi að fá leiðréttar hjá þeim sem heldur hana. Hætti skráin að staðfesta réttindi sem áður voru staðfest ákveða rekstraraðilar Verka, að undangenginni athugun, hvort merkið standi eða verði fjarlægt. Iðnaðarmaður skal án tafar tilkynna Verka ef réttindi hans falla niður, eru afturkölluð eða takmörkuð. Merkið felur hvorki í sér meðmæli, staðfestingu á hæfni, né ábyrgð Verka á viðkomandi iðnaðarmanni eða verkum hans, og Verka ábyrgist ekki að skráin sé rétt, tæmandi eða uppfærð.
Efni sem notendur birta á vettvangnum — verkefnalýsingar, tilboð, skilaboð, umsagnir, kynningartexta og myndir — er á ábyrgð þess notanda sem birtir það. Verka fer ekki yfir efni notenda fyrir birtingu, ábyrgist ekki að það sé rétt og gerir efnið ekki að sínu. Umsagnir eru persónuleg skoðun höfundar en ekki mat Verka.
Umsögn verður aðeins skrifuð um verk sem samið var um á Verka og merkt hefur verið lokið, og aðeins af aðilum þess: verkkaupi getur skrifað eina umsögn um þann iðnaðarmann eða það fyrirtæki sem hann tók tilboði frá, og iðnaðarmaðurinn sem tilboðinu var tekið frá getur skrifað eina umsögn um verkkaupann. Umsagnir um iðnaðarmenn og fyrirtæki eru opinberar; umsagnir um verkkaupa sjá innskráðir notendur, meðal annars iðnaðarmenn sem íhuga að bjóða í verk hans.
Umsagnir skulu byggja á raunverulegri reynslu af viðskiptum á vettvangnum og vera málefnalegar. Óheimilt er að skrifa umsögn gegn greiðslu eða öðrum ávinningi, undir hótunum eða þvingun, um sjálfan sig eða tengdan aðila, eða í því skyni að skaða keppinaut, og óheimilt er að krefjast jákvæðrar umsagnar eða hóta neikvæðri. Óheimilt er að birta efni sem er ærumeiðandi, ólögmætt, brýtur gegn hugverkarétti, friðhelgi einkalífs eða öðrum réttindum annarra.
Verka er hýsingaraðili efnis notenda í skilningi 14. gr. laga nr. 30/2002 um rafræn viðskipti og aðra rafræna þjónustu. Telji þú að efni á vettvangnum sé ólögmætt eða brjóti gegn réttindum þínum skaltu tilkynna það á netfangið í 17. kafla, með tilvísun í efnið og rökstuðningi. Verka fjarlægir eða lokar fyrir aðgang að efni án tafar eftir að hafa fengið vitneskju um ólögmæti þess. Verka áskilur sér jafnframt rétt til að fjarlægja efni sem brýtur gegn skilmálum þessum að eigin mati, án fyrirvara.
Sá sem umsögn fjallar um getur andmælt henni á síðunni Stillingar, og rekstraraðilar Verka ákveða þá hvort umsögnin standi eða verði fjarlægð. Höfundur getur hvorki birt aftur umsögn sem hefur verið fjarlægð né skrifað nýja umsögn um sama verk. Þegar efni er fjarlægt, aðgangur takmarkaður eða fyrirtæki lokað er viðkomandi tilkynnt um ákvörðunina og ástæður hennar, nema lög standi því í vegi eða tilkynning myndi spilla rannsókn á ólögmætri háttsemi. Notandi getur óskað endurskoðunar ákvörðunar með rökstuddri beiðni á netfangið í 17. kafla, og verður henni svarað innan 30 daga. Ákvörðun má breyta að lokinni endurskoðun, þar á meðal birta aftur efni sem fjarlægt var eða opna aftur fyrirtæki sem lokað var.
Þú ábyrgist að þú eigir réttindi að efni sem þú birtir, þar á meðal myndum, eða hafir heimild til að birta það, og að fólk sem þekkja má á myndum hafi samþykkt birtinguna. Með birtingu veitir þú Verka endurgjaldslaust leyfi til að birta, geyma og afrita efnið að því marki sem þarf til að reka þjónustuna. Leyfið gildir á meðan efnið er á vettvanginum og er aðeins óafturkallanlegt að því leyti sem efnið stendur eftir samkvæmt 13. kafla. Efni þitt verður ekki notað í markaðsefni utan vettvangsins nema með samþykki þínu. Þú átt áfram réttindi þín að efninu. Umsagnir, myndir sem fylgja umsögnum og önnur færsla sem varðar aðra notendur geta staðið áfram á vettvangnum eftir að aðgangi er eytt, án tengingar við persónuauðkenni, sbr. 13. kafla og persónuverndarstefnu.
Notkun þjónustunnar er án endurgjalds. Verka áskilur sér rétt til að taka upp gjaldtöku síðar, t.d. í formi áskriftar. Gjaldtaka verður kynnt með að minnsta kosti 30 daga fyrirvara samkvæmt 15. kafla og nær aldrei til þjónustu sem þegar hefur verið veitt. Kjósir þú að greiða ekki geturðu eytt aðganginum þínum án kostnaðar.
Verka og einkenni þjónustunnar — þar á meðal vörumerki, útlit, hugbúnaður og efni frá Verka — eru eign rekstraraðila Verka eða rétthafa þeirra. Þér er veitt takmörkuð, óframseljanleg heimild til að nota þjónustuna í samræmi við skilmála þessa. Óheimilt er að afrita, breyta eða dreifa þjónustunni eða hluta hennar án skriflegs samþykkis.
Þjónustan er veitt „eins og hún er“ og „eins og hún er tiltæk“ og án ábyrgðar á því að hún sé án truflana eða villna, að hún henti tilteknum tilgangi, eða að upplýsingar á vettvangnum — þar á meðal upplýsingar frá notendum og merkið „staðfest réttindi“ — séu réttar.
Að því marki sem lög frekast heimila ber Verka ekki ábyrgð á:
Að því marki sem lög heimila er samanlögð ábyrgð rekstraraðila Verka gagnvart hverjum notanda, vegna allra krafna sem rekja má til þjónustunnar, takmörkuð við þá fjárhæð sem notandinn hefur greitt Verka fyrir þjónustuna síðustu tólf mánuði á undan atvikinu sem krafan byggir á.
Ekkert í skilmálum þessum takmarkar ábyrgð á tjóni sem rekstraraðilar Verka valda af ásetningi eða stórfelldu gáleysi, né ábyrgð sem óheimilt er að takmarka að lögum, þar á meðal réttindi neytenda samkvæmt ófrávíkjanlegri neytendalöggjöf.
Þú skuldbindur þig til að halda rekstraraðilum Verka skaðlausum af öllum kröfum, kostnaði, tjóni og útgjöldum — þar á meðal hæfilegum lögmannskostnaði — sem þriðji aðili eða annar notandi beinir að þeim og rekja má til (a) notkunar þinnar á þjónustunni, (b) efnis sem þú birtir, (c) verka, tilboða eða samninga sem þú átt aðild að í gegnum þjónustuna, eða (d) brota þinna á skilmálum þessum eða lögum. Gagnvart neytendum gildir ákvæði þetta að því marki sem ófrávíkjanleg neytendalöggjöf heimilar.
Þú getur eytt aðganginum þínum hvenær sem er með hnappnum „Eyða reikningi“ á síðunni Stillingar. Við eyðingu eru persónuauðkenni þín fjarlægð — nafn, kennitala, símanúmer, netfang, prófílmynd og kynningartexti — og aðgangnum er lokað varanlega.
Færslur sem varða aðra notendur standa eftir í dulnefndri mynd, án persónuauðkenna: verkefni sem tilboð, skilaboð eða umsagnir tengjast, tilboð, skilaboð, umsagnir og myndir sem fylgja umsögnum, ásamt myndum af verkefnum sem standa eftir. Verkefni sem enginn annar notandi hefur átt aðild að er eytt, en um verkefni sem auglýst voru í nafni fyrirtækis og um fyrirtæki sem þú átt fer samkvæmt 4. kafla. Texti og myndir sem þú hefur sjálf/ur sett inn eru ekki ritstýrð við eyðingu. Þetta er nánar útfært í persónuverndarstefnu.
Verka áskilur sér rétt til að loka eða takmarka aðgang tímabundið eða varanlega vegna brota á skilmálum þessum, misnotkunar á þjónustunni eða þegar lagaskylda krefur. Gætt skal meðalhófs og notanda tilkynnt um lokunina og ástæður hennar, og hann getur óskað endurskoðunar hennar, sbr. 8. kafla. Sé aðgangi eða fyrirtæki lokað er óheimilt að skrá sig aftur meðan lokunin varir.
Um vinnslu persónuupplýsinga hjá Verka fer samkvæmt persónuverndarstefnu Verka, sem telst hluti af skilmálum þessum.
Notandi sem fær persónuupplýsingar um annan notanda í gegnum Verka, svo sem nafn, símanúmer eða heimilisfang, má aðeins nota þær vegna þess verks sem samskiptin varða og ber sjálfur ábyrgð á þeirri vinnslu sem sjálfstæður ábyrgðaraðili. Óheimilt er að nota slíkar upplýsingar til markaðssetningar eða miðla þeim áfram. Ekki skal setja nákvæmt heimilisfang, símanúmer eða aðrar persónuupplýsingar í verklýsingu sem aðrir notendur sjá.
Verka getur unnið ópersónugreinanlegar tölfræðiupplýsingar úr gögnum á vettvanginum, t.d. um verðbil lokinna verka, og birt þær.
Verka getur breytt skilmálum þessum, t.d. vegna breytinga á þjónustunni, gjaldtöku eða löggjöf. Efnislegar breytingar verða kynntar með tilkynningu á vefnum og við næstu innskráningu að minnsta kosti 14 dögum áður en þær taka gildi. Notir þú þjónustuna áfram eftir gildistöku breyttra skilmála telst þú hafa samþykkt þá. Samþykkir þú ekki breytingarnar geturðu eytt aðganginum þínum áður en þær taka gildi. Dagsetning gildistöku og síðustu uppfærslu er birt efst á þessari síðu.
Rekstraraðilum Verka er heimilt að framselja réttindi sín og skyldur samkvæmt skilmálum þessum til félags sem þeir stofna um rekstur Verka eða til annars aðila sem tekur við rekstri þjónustunnar. Notendum verður tilkynnt um framsalið með minnst 30 daga fyrirvara og geta þeir eytt aðgangi sínum áður en það tekur gildi. Framsal skerðir ekki réttindi notenda samkvæmt skilmálum þessum eða persónuverndarlögum.
Skilmálarnir eru birtir á íslensku og ensku. Þú getur vistað þá og prentað af þessari síðu. Fyrri útgáfur skilmálanna eru aðgengilegar á beiðni á netfangið í 17. kafla.
Um skilmála þessa og notkun þjónustunnar gilda íslensk lög. Ágreiningur milli þín og rekstraraðila Verka sem ekki tekst að leysa með samkomulagi skal rekinn fyrir íslenskum dómstólum og er varnarþing í Reykjavík, nema ófrávíkjanlegar réttarfarsreglur leiði til annars.
Ágreining um verk milli verkkaupa og iðnaðarmanns skulu aðilar leysa sín á milli. Neytandi getur beint slíkum ágreiningi til kærunefndar vöru- og þjónustukaupa. Kvörtunum vegna Verka sjálfrar má beina til Neytendastofu og kvörtunum vegna persónuverndar til Persónuverndar, sbr. persónuverndarstefnu.
Reynist ákvæði skilmála þessara ógilt halda önnur ákvæði gildi sínu. Þótt Verka beiti ekki rétti sínum samkvæmt skilmálunum felst ekki í því afsal hans. Ákvæði 8., 11., 12. og 16. kafla halda gildi sínu eftir að aðgangi er eytt.
Fyrirspurnum og tilkynningum vegna skilmála þessara má beina til rekstraraðila Verka, Skólagerði 10, 200 Kópavogur, netfang: verka@verka.is.