Lýstu verkinu í nokkrum orðum, settu inn myndir og staðsetningu. Það tekur um tvær mínútur og kostar ekkert.
verka.is
PípariSem fyrst
Endurnýja baðherbergi
105 ReykjavíkTilboð
SKREF 02
Fáðu tilboð
Löggiltir iðnaðarmenn á þínu svæði senda þér verð og tímaramma. Þú getur spurt spurninga beint í gegnum Verka.
verka.is
180.000 kr
215.000 kr
240.000 kr
265.000 kr
180.000 kr
215.000 kr
240.000 kr
265.000 kr
SKREF 03
Veldu réttan
Berðu saman umsagnir, einkunn og verð — og samþykktu þann sem hentar þér best. Engin skuldbinding fyrr en þú velur.
verka.is
215.000 kr
180.000 kr
240.000 kr
Öryggi & traust
Byggt á staðfestingu, ekki ágiskun
Löggilt & staðfest
Hver iðnaðarmaður er staðfestur gegnum island.is.
Gagnsæ tilboð
Berðu saman verð og tímaramma hlið við hlið, án falinna gjalda.
Engin skuldbinding
Að birta verk og fá tilboð er ókeypis og án kvaða.
Raunverulegar umsagnir
Einkunnir koma frá verkum sem raunverulega voru kláruð á Verka.
Algengar spurningar
Gott að vita
Ekkert. Það er ókeypis að birta verk, senda tilboð og nota Verka að öðru leyti. Verkið sjálft greiðirðu iðnaðarmanninum beint — Verka annast engar greiðslur og tekur enga þóknun.
Allir iðnaðarmenn á Verka eru auðkenndir gegnum island.is og réttindi þeirra sótt í löggildingaskrá iðnaðarmanna. Á hverjum prófíl sérðu í hvaða iðngreinum viðkomandi er löggiltur, og þegar þú birtir verk geturðu takmarkað tilboð við þá sem eru löggiltir í iðngreininni eða skyldri iðngrein. Skyld iðngrein á aðeins við í tveimur tilvikum: rafvélavirki getur boðið í rafvirkjun og húsgagnasmiður í húsasmíði. Á tilboði frá þeim stendur „Skyld iðngrein“, svo þú sérð það áður en þú tekur því.
Nei. Tilboð og samþykki á Verka eru viljayfirlýsingar, ekki samningur. Iðnaðarmaður getur afturkallað tilboð sitt á meðan þú hefur hvorki tekið því né hafnað. Ef þú hafnar tilboði getur hann sent eitt nýtt tilboð með skýringu á meðan verkið er opið. Þegar þú hefur samþykkt tilboð gangið þið sjálf frá samningi ykkar á milli, helst skriflega.
Já. Veldu „Óska eftir tilboði“ á prófíl iðnaðarmannsins eða síðu fyrirtækisins. Þú getur sent verk sem þú hefur þegar birt, eða lýst nýju verki og ráðið hvort aðeins viðtakandinn sér það eða allir.
Meðan verkið er opið fyrir tilboðum geturðu eytt því. Eftir að tilboð hefur verið samþykkt geta bæði þú og iðnaðarmaðurinn hætt við verkið með stuttri skýringu, sem hinn aðilinn sér.
Annað hvort ykkar merkir verkið lokið á Verka. Þá getið þið skrifað umsögn hvort um annað — umsögnin um iðnaðarmanninn birtist á prófíl hans og hjálpar öðrum að velja.
Já, í tölvupósti: þegar tilboð berst í verkið þitt, þegar tilboði þínu er tekið eða hafnað, þegar þú átt ólesin skilaboð, þegar þú færð beiðni um tilboð, þegar þér er boðið í fyrirtæki og þegar Verka staðfestir eða lokar fyrirtæki sem þú skráðir. Iðnaðarmenn fá auk þess einn póst á dag með nýjum verkefnum sem auglýst hafa verið í iðngrein þeirra og á svæði þeirra, aðeins þegar eitthvað nýtt er. Þú velur hvaða póst þú færð undir Stillingar → Tilkynningar.
Já. Fyrirtæki með kennitölu getur skráð sig á Verka og sent tilboð í eigin nafni: í öll verk sem eru opin öllum, og í verk sem krefjast löggildingar þegar einhver í fyrirtækinu er löggiltur í greininni, því löggildingin fylgir fólkinu. Fyrirtækið fær sameiginlegt pósthólf fyrir tilboð og skilaboð og sína eigin síðu á Verka. Fyrirtæki birta ekki verkefni á Verka, það gera einstaklingar. Þú þarft ekki að vera í forsvari til að skrá fyrirtækið: ef þú ert prókúruhafi, í stjórn eða framkvæmdastjóri samkvæmt fyrirtækjaskrá er það staðfest strax, annars staðfestir Verka það þegar umboð hefur borist. Fyrirtæki skráirðu undir Stillingar → Fyrirtæki, og skráð fyrirtæki sérðu á verka.is/fyrirtaeki.
Undir Stillingar → Öryggi & gögn. Persónuupplýsingum þínum er eytt og aðgangnum lokað. Verk, tilboð, skilaboð og umsagnir sem tengjast öðrum notendum standa áfram, án persónuauðkenna. Eydd gögn hverfa úr öryggisafritum þegar þau renna út.
Tilbúin að byrja?
Það kostar ekkert að birta verk, og þú ræður hvort þú tekur einhverju tilboði.